
Rúnar Júlíusson er bæjarlistamaður Reykjanesbæjar og í tilefni Ljósanæturhátíðarinnar í ár mun hann senda frá sér sólóplötu sem kemur út á Ljósanótt. Á henni eru þrettán lög en í ellefu þeirra kemur hann sjálfur við sögu, ýmist sem lagahöfundur, textahöfundur eða hvort tveggja.
Einvalalið höfunda Meðal annarra lagahöfunda má nefna Bjartmar Guðlaugsson, Jóhann Helgason, Larry Otis, Magnús Kjartansson, Sigurð Eyberg Jóhannesson, Torfa Ólafsson, Tryggva Hübner, Þór Sigurðsson og Júlíus Frey Guðmundsson. Sá síðastnefndi á þrjú lög (í einu að hluta til) og þrjá texta (tvo í samvinnu við föður sinn, Rúnar Júlíusson). Aðrir textahöfundar á plötunni eru Einar Már Guðmundsson og Jóhann Helgason. Platan dregur nafn sitt af einu laganna; Snákar í garðinum.
Ljósalagið í ár
Jóhann Helgason var valinn til að semja Ljósalag Reykjabesbæjar í ár. Það er einmitt að finna á þessum diski og kemur ekki út annarsstaðar. Lagið heitir Ó Keflavík (við texta Jóhanns sjálfs) og verður frumflutt af Rúnari og Jóhanni sem einn af hápunktum hátíðarinnar á Ljósanótt í septemberbyrjun.
Margir hljóðfæraleikarar koma við sögu á plötunni og spila á margskonar hljóðfæri. Þeir sem spila eru Þórir Baldursson, Tryggvi Hübner, Sigurgeir Sigmundsson, Júlíus Freyr Guðmundsson, Jóhann Helgason, Björgvin Ívar Baldursson, Baldur Þórir Guðmundsson, Björn Árnason og Kristján Kristjánsson (KK).
Rúnar syngur öll lögin á plötunni en auk hans syngja þeir Júlíus Freyr Guðmundsson, Jóhann Helgason og Einar Helgi Jóhannsson bakraddir.
Júlíus Freyr Guðmundsson stjórnaði upptöku og hljóðblöndun á plötunni en fékk Björgvin Ívar Baldursson til liðs við sig. Upptökurnar fóru fram á Upptökuheimili Geimsteins í sumar.