
Laugardagskvöldið 27 október mun Rúnar Júlíusson ásamt stórri hljómsveit flytja öll sín þekktustu lög á sannkölluðum stórtónleikum í Laugardalshöll. Lög Hljóma, Trúbrots, Lónlí Blú Bojs GCD, Áhöfninni á Halastjörnunn, Baggalúts og af sólóferli Rúnars munu fá að njóta sín í bestu mögulegu hljómgæðum og ljósashjói í höllinni.
Fjöldi gesta munu heiðra Rúnar með nærveru sinni og söng og má þar meðal annars nefna Bubba Morthens, Björgvin Halldórsson, Magnús Kjartansson, Baggalútsmenn, Shady Owens, Doktor Gunna, Gylfa Ægisson, Hermann Gunnarsson og Larry Otis.
Miðasala á midi.is