runarjul.is | Rúnar Júlíusson | Spjall



      Rúnar Júlíusson

runarjul.is  »  Spjall



Spjall > Trúbrot-geisladiskar

Frá: Mikael Þorsteinsson 6.12.2007 02:51:11
Sæll er mikill aðdáandi Trúbrota, ótrúlegt hvað þessi lög eldast ótrúlega vel eins og mennirnir sem að sömdu þessa líka snilld.

En eitt vantar mig að vita, ég bý út á landi og mig vantar óneitanlega diska með Trúbrot. Getur þú nokkuð gefið mér einhverjar upplýsingar um hvar beri að nálgast slíka geisladiska.. Til dæmis diskana Brot af því besta, Trúbrot og Lifun.. eða bara alla þá diska sem þið hafið gefið út!?

bý spenntur eftir svari, hef leytað víðs vegar og ekki fundið
Frá: Rúnar Júlíusson 6.12.2007 09:55:06
Góðan daginn
Ég gæti útvegað þér Lifun og Mandala,en Brot af því best,Undir áhrifum og fyrstu Trúbrot plötuna ættir þú að fá hjá Senu
Þú sendir bara heimilisfang og frekari upplýsingar og við sendum þér þessar sem við getum útvegað
kveðja
Rúnar J
Ég gæti áritað þær ef þú vilt